2-3 msk ólífuolíu
1 stk. stór laukur
1 stk. engiferrót
2 stk. hvítlauksrif
1 msk. karrí
1 tsk. chilipipar
1 tsk. sjávarsalt
1 tsk. cuminduft
1 tsk. kóríanderduft
1 tsk. kardimommuduft
3 dl. kókosmjólk
3 stk. gulrætur
2 stk. kartöflur
1/2 stk blómkálshöfuð
250 g. frosnar grænar baunir
1/2 búnt ferskt kóríander
Það er margt líkt með palistanskri og indverskri matreiðslu. Laukurinn er t.d. oftast settur fyrst í pottinn, látin mýkjast og gyllast, og síðan er kryddin bætt útí og þá er kominn grunnur sem síðan er hægt að bæta allskonar grænmeti og baunum saman við. Þessi pakistanski grænmetispottréttur er einfaldur og góður fyrir ykkur sem hafið áhuga á að kynnast réttum frá framandi löndum. Rétturinn krefst ekki mikillar reyndlu af eldamennsku.
Afhýðið laukinn og skerið í þunnar sneiðar. Fín saxið engiferrót og pressið hvítlaukinn. Skerið gulrætur í 1/2 cm þunnar sneiðar, en kartöflur og blómkál í litla bita. Fín saxið kóríander. Mýkið laukinn í olíunni í 6-8 mín. eða þar til hann er byrjaður að gyllast. Bætið hvítlauk, engifer, karrí, chilipipar, salt og öðru kryddi útí og látið malla í 2 mín. Setjið kókosmjólina útí og hrærið vel í pottinum. Setjið lok á pottinn og látið krauma í um 5 mín. og hrærið vel í um 1 mín. Setjið lokið aftur á pottinn og sjóðið í um 10 mín. eða þar til grænmetið er orðið meyrt. Stráið fersku kóríander yfir og berið þennan gómsæta rétt gjarnan fram með bssmati hrísgrjónum, fersku salati og kaldri sósu t.d. eplaraitu.
-