Italskur pottréttur

Innihald

2-3 msk. ólífuolía

2 stk. laukar

2 stk. sellerístilkar

1/2 stk. fennel

1/2 stk. blómkálshaus

300 g sveppir

3 stk. hvítlauksrif

4-5 msk. tómatmauk

1 dl eplamauk

1 krukka grilluð paprika frá Sacla

1/2 búnt fersk basilíka

10 stk. grænar ólífur

10 stk. svartar ólífur

smá sjávarsalt og nýmalaður pipar

 

ofaná

smá fersk basilíka

nokkrar furuhnetur

nokkrar sneiðar parmesanostur

nokkur kaperber á stöngli

Aðferð

Þessi ítalski réttur er fjótlegur og afar einfaldur og hann er fínt að eiga upp í erminni þegar þið hafið lítinn tíma til að stússa í eldhúsinu. Öllu er hent í pott, rétturinn látinn sjóða, og hann síðan borinn fram. 

Afhýðið laukana og skerið í þunnar sneiðar. Skerið sellerí um 1 cm þykka bita og fennel og blómkál í hæfilrga stóra munnbita. Skerið sveppina og gróf saxið hvítlaukinn. Hitið olíuna í potti og setjið allt grænmetið og hvítlaukinn útí og létt steikið í um 5 mín. Bætið þá tómatmauki, eplamauki, grilluðum paprikum, ferskri basilíku og ólífum útí og sjóðið í um 30 mín. Bragðið til með sjávarsalti og nýmöluðu svörtum pipar. Skutlið því sem á að fara ofaná yfir réttinn og berið hann síðan fram. Með þessum rétti er smart að bera fram valhnetu- og speltpasta.

Athugasemdir

.

Flokkar
Grænmetisréttur Kvöldmatur Pottréttur
Skoðanir