Tómatmauksúpa með basilíku og hvítlauk

Innihald

2 stk. skalottulaukur

2 stk. gulrætur

1 stk. sellerístilkur

1 stk. rauð paprika

1 msk. olía

5 dl kjúklingasoð

5 dl rjómi

1 dós spaghettísósa frá Hunt's, Roasted Garlic & Onion

2 msk. púðursykur

1 msk. basilíkuolía

1/2 tsk. cayennepipar 

salt

Aðferð

Afhýðið skalottlauka og skerið í litla teninga. Hreinsið gulrætur, sellerístilk og papriku og skerið í tiltla teninga. Steikið allt saman í olíu í potti. Hellið kjúklingasoði og rjóma saman við og sjóðið við vægan hita í 15 mín. Bætið spaghettísósu og púðursykur saman við og látið suðuna koma upp. Smakkið til með cayennepipar og salti. Setjið súpuna á diska og nokkra dropa af basilíkuolíu yfir. Það er mjög gott að bæta sjávarfangi í þetta súpu.

Athugasemdir

Fyrir um 6 manns.

Flokkar
Grænmetisréttur Hádégismatur Kvöldmatur Súpa
Skoðanir