Steiktur lax með hvítlaukssmjörsósu Gestgjafinn

Innihald

700 g laxaflak með roði

1 tsk, salt

1/2 tsk. pipar

3 msk. smjör

 

Hvítlaukssmjörsósa:

8 hvítlausrif

vatn

1 msk. smjör

1 búnt steinselja

1 dl vatn

100 g mjúkt smjör

2 dl vatn

1/2 tsk. pipar

2-3 tsk. sítrónusafi

Aðferð

Byrjið á sósunni. Afhýðið hvítlaukinn, kjúfið hvert rif eftir endilöngu og fjarlægið kjarnann í miðjunni (hann er stundum grænn ef laukurinn er að byrja að spíra). Sjóðið vatn í litlum potti, setjið hvítlaukinn í sjóðandi vatnið og sjóðið hann í 5 mín. Hellið vatninu frá. Bræðið 1 msk. af smjöri á pönnu og steikið hvítlauksrifin í smjörinu rétt undir meðalhita. Hvítlaukurinn á ekki að brúnast, aðeins að mýkjast í smjörinu. Takið pönnuna af hitanum og geymið hvítlaukinn í smjörinu. Saxið eða klippið steinseljuna niður og látið hana í pott með vatni. Látið suðuna koma upp, hellið síðan steinseljunni í sigti og látið vatnið renna vel af. Hrærið steinseljunni saman við mjúkt smjörið. Sjóðið 2 dl. af vatni með saltinu og piparnum, bætið steinseljusmjörinu smátt og smátt saman við og þeytið vel á milli. Bætið sítórusafanum í sósuna og að lokum hvítlauknum og smjörinu af pönnunni.

Skerið laukinn í fjóra stóra bita eða átta minni bita, saltið og piprið laxabitana og steikið í smjörinu við meðalhita. Berið laxinn fram heitan með hvítlaukssmjörsósunni og steiktum eða soðnum kartöflum og spergilkáli. Það er líka gott að hafa snittubrauð með til að ná upp smjörsósunni. 

Athugasemdir

f. 4

Flokkar
Kvöldmatur Sjávarréttur
Skoðanir