Innihald
300 g spaghetti
800 g nautahakk
2 msk. smjör
2 laukar
3-4 rif hvítlaukur
2 dl tómatsósa
1 tsk. oregano
1 tsk. kjötkraftur
1 dl vatn
1 dós (200 g) sýrður rjómi 10%
Aðferð
Sjóðið spaghetti eftir leiðbeiningum á umbúðum. Saxið laukinn og látið hann krauma í smjöri. Bætið hakkinu út í og brúnið það vel. Pressið hvítlauksrifin eða skerið smátt og setjið út í ásamt kryddinu, tómatsósunni og vatninu.
Látið hakkið sjóða við vægan hita í 5-10 mín. Blandið sýrða rjómanum saman við hakkið og sjóðið áfram í 3-5 mín. Hellið spaghettíiinu á sigti og látið örlítið kalt vatn renna yfir það. Hellið hakksósunni yfir spaghettíið eða berið það fram sér.
Berið fram grænmetissalat og rifinn ost með þessum rétti.
Athugasemdir
.
Flokkar
Skoðanir