Sælkeraýsa

Innihald

800 g ýsuflök

1 laukur

1 paprika

1 epli

4 gulrætur

1 tsk. karrí

100 g rjómaostur

1 dl rjómi

1 tsk. salt

1 tsk. "season all"

1/2 tsk sítrónupipar

Aðferð

Skerið laukinn í sneiðar, paprikuna í strimla og eplin og gulræturnar í bita. Brúnið laukinn á pönnu (lítið), bætið paprikunni í og látið hana krauma með lauknum og að síðustu eplunum og gulrotunum. Stráið karríinu yfir pönnuna og látið rjómaostinn því næst bráðna á pönnunni og hellið rjómanum yfir. Skerið fiskinn í litil stykki og leggið yfir pönnuna, stráið "season all", salt og sítrúnupipar yfir. Látið lokið á pönnuna og sjóðið við vægan hita í 5-10 mín. Ef vill má jafna með sósujafnara.

Athugasemdir

.

Flokkar
Kvöldmatur Sjávarréttur
Skoðanir