3 msk. ólífolía
1 laukur, saxaður
1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt eða pressaður
1/2 sellerístöngull, saxaður (má sleppa)
2 msk. steinselja, söxuð
pipar, nýmalaður
salt
250 g sveppir, skornir í sneiðar
200 ml mjólk
250 g arboriohrísgrjón
um 1 l kjötsoð eða kjúklingasoð, sjóðheitt
25 g smjör
100 g parmigiano-ostur, nýrifinn
Olían hituð í þykkbotna potti og laukurinn og hvítlaukinn látinn krauma við vægan hita í um 5 mín. Selleríi, steinselju, pipar og salti hrært saman við og síðan sveppunum. Látið krauma í 2-3 mín., mjólkinni hellt yfir og soðið í um 5 mín. í viðbót við meðalhita. Hrísgrjónum bætt út í og hrætt vel. Þegar nær allur vökvi er gufaður upp er farið að bæta soðinu út í, enni ausu í senn, hrært nærri stöðugt, og sjóðheitu soði bætt út í smám saman, um 100 ml í einu, þó aldrei fyrr en nær allur vökvi er horfinn. Haldið áfram þar til grjónin eru meyr, eða í um 20 mín. Þá er smjöri og osti hrært saman við og berið fram strax.
.