2-3 msk. ólífuolía
2-3 stk. laukar
2-3 stk. hvítlauksrif
1 stk. lárviðarlauf
1 stk. stórt eggaldin
1 stk. fennel
1 tsk. sjávarsalt
1 1/2 tsk þurrkuð basilíka eða 2 msk fersk
1 tsk. marjoram
1 tsk. oregano
1/2 tsk. timjan
1/2 tsk. rósmarín
1 stk. stór kúrbítur
2 stk. rauðar paprikur
1/8 tsk. cayennepipar
450 g tómatar
2 msk. tómatmauk
1/2 búnt fersk steinselja
Afhýðið laukana og skerið í þunnar sneiðar. Pressið hvítlaukinn og skerið eggaldin í 2 x 2 cm bita. Skerið fennel í 1 x 1 cm bitaog kúrbít í 2 cm þykkar sneiðar. Skerið paprikunar í tvennt, fræhreinsið og skerið í 2 x 2 cm bita. Skerið tómatana í tvennt og síðan hvorn helming í 4 báta. Fín saxið steinseljuna. Hitið olíuna í potti og mýkið lauk, hvítlauk og lárviðarlauf í um 5 mín. Bætið eggaldini, fennel, salti og kryddi útí. Setjið lok á pottinn og látið malla í um 10 mín. Þá setjið þið kúrbít, paprikur, cayennepipar, tómata og tómatmauk útí og sjóðið í aðrar 10 mín. Stráið saxaðri steinselju yfir réttinn og berið fram.
.