Innihald
1 kg. Humar
½ tsk. Salt
½ tsk. Pipar
¾ tsk. Paprikukrydd
¼ st. Gullostur
6-7 msk. Rifsberjahlaup
2 Pelar rjómi
Aðferð
Kippum humrinum úr skelinnni og setjum hann á vel heita pönnu.
Stráum salti, pipar og paprikukryddi yfir og látum í u.þ.b. eina mínútu.
Síðan setjum við ostinn og rifsberjahlaupið út í og veltum öllu saman
Þar til ostur og hlaup eru við það að bráðna niður.
Þá hellum við rjómanum út á og sjóðum vel saman, ekki lengur en
4 mínútur.
Þar með er rétturinn tilbúinn og best að bera hann fram á pönnunni.
Með þessu er borið ristað brauð og hrásalat og milt hvítvín hentar vel
með þessu.
Flokkar
Skoðanir