Ofnbakaður lax með gráðosti og sérrísósu Gestgjafinn

Innihald

800 g ferskt laxaflak

8 msk. gráðostur

2 msk. brætt smjör

1/2 tsk. salt

1/2 tsk. hvítur pipar

 

Sérrísósa

2 dl hálfsætt sérrí

1 fiskiteningur 

1 dós sýður rjómi

1 dl saxað dill

2 msk. smjör

Aðferð

Laxinn:

Notið helst miðhluta flaksins. Snyrtið laxinn og fjarlægið öll hugsanleg bein. Skerið laxinn í 8 jafn stóra hluta og skerið síðan "vasa" í hvern bita, varist þó að skera of langt í gegnum bitann. Raðið laxastykkjunum í smurða ofnskúffu og setjið 1 msk. af gráðosti í hvern vasa. Penslið laxinn með bræddu mjöri og stráið salti og pipar yfir. Hitið ofinn í 200 gráður á meðan sósan er útbúin.

 

Sérrísósa:

Setjið sérríið í pott og látið suðuna koma upp, myljið fiskikraftinn út í og sjóðið áfram í 10 mín. Bætið sýrða rjónanum út í og hrærið vel saman. Sjóðið sósuna áfram í 2-3 mín., bætið þá dillinu og smjörinu saman við sósuna og hrærið vel. 

Setjið laxinn í heitan ofninn og bakið hann í 6-8 mín. Berið laxinn fram með sósunni, grænmeti og soðnum karftöflum.

 

Athugasemdir

F.4

Flokkar
Sjávarréttur
Skoðanir