2 laukar, saxaðir
2 gulrætur, hreinsaðar og sneiddar
50 gr sveppir, hreinsaðir og sneiddir
3 msk. matarolía
500 gr nautagúllas
1 msk. hveiti
2 msk. tómatmauk
1 1/2 dl bjór eða pilsner
salt og nýmalaður pipar
1 tsk. timian
1 lárviðarlauf
Til að skreyta með:
Ristaðar brauðsneiðar skornar í þríhyrninga og saxaða steinselju
Matreiðslutími 1 1/2-2 klst.
Ofnhiti 180°C, 350°F.
Látið grænmetið krauma í tveim msk. af matarolíu við miðlungs hita í 5 mín. Takið pönnuna af hitanum og látið grænmetið í eldfast mót. Veltið kjötinu upp úr hveiti eða hristið það saman í plastpoka og brúnið vel á öllum hliðum í matarolíunni serm eftir er, við góðan hita. Látið kjötið yfir grænmetið í mótinu. Tómatmauki, bjór og kryddi hrærtsaman og hellt yfir. Bakað í lokuðu móti í ofninum nálega 1 1/2 klst. Bragðað og bragðbætt, lárviðarlaufið tekið upp úr. Skreytt með saxaðri steinselju og ristuðum brauðteningum. Einnig er gott að bera hrærðar kartöflur og hrásalat með þessum rétti.
300 g sveppir 500 ml bjór 1 1/2 msk. salt tæp tsk. pipar