4 kjúklingabringur, smátt skornar (eða heill kjúklingur, skorinn í litla bita)
1 rauð paprika, smátt skorin
1 græn paprika, smátt skorin
1 gul paprika, smátt skorin
2 gulrætur, smátt skorinn
1/2 blaðlaukur, smátt skorinn
2 hvítlauksgeirar
1 laukur, smátt skorinn
1/2 rautt chili, fræhreinsað og smátt skorið
2 msk. olía
2 dósir saxaðir tómatar
2 kjúklingakraftsteningar
2-3 msk. karrí
örlítið kjúklingakrydd
2-2 1/2 l vatn
1 peli rjómi
1 dós tómatpúrra
1/2 flaska Heinz chili tómatsósa
200 g hreinn rjómaostur
salt og nýmalaður pipar
Hitið olíu á pönnu við vægan hita, saxið grænmetið smátt og steikið í smástund á pönnunni, bara rétt til að fá örlítinn gljáa. Setjið grænmetið í stóran pott, bætið vatninu, tómatpúrra, tómatsósunni, karrí, kjúklingateningum og söxuðum tómötum saman við, leyfið þessu að malla á meðan þið steikið kjúklinginn.
Skerið kjúklinginn í litla bita og steikið á pönnu upp úr olíu í stundarkorn, kryddið til með kjúklingakryddi, salti og pipar. Bætið kjúklingnum við súpuna. Látið hana sjóða við vægan hita í 10-15 mínn.
Að lokum er rjóminn og rjómaosturinn settur saman við. Gefið ykkur góðan tíma til að laga súpuna, látið hana malla við lágmarki í 30 mín. Ég leyfi henni oft að sjóða við vægan hita í u.þ.b. klst., en þess þarf auðvitað ekki. Bragbætið súpuna að vild, sumir vilja hafa karrí eða meira pipar. Mikilvægt er að prófa sig áfram.
Stór uppskrift, skammtur f.10