4-5 msk. góð olía
1 laukur, saxaður
3 hvítlauksgeirar, saxaðir
3-3 1/2 dl vatn
4 gulrætur, sneiddar
2 paprikur, gul og rauð, skornar í bita
3 msk. tómatmauk
1 dós niðursoðnir tómatar
1 1/2 teningur fiskikraftur
1tsk. tandoori masala
1/2 tsk. karrí
6 sólþurrkaðir tómatar, sneiddir
4 msk. sætt mangómauk (chutney)
1 dl sæt chili-sósa
3-4 dósir kókosmjólk
500-600 g lax, skorinn í bita
300 g rækjur
1-1 1/2 dl matreiðslurjómi, má sleppa
svartur nýmalaður pipar
salt
steinselja, söxuð
Hitið olíuna á pönnu og steikið laukinn og hvítlaukinn í nokkrar mín., passið að laukinn brúnist ekki. Setjið allt hráefnið út í nema rækjurnar, fiskinn og steinseljuna. Kryddið með svörtum pipar og salti. Látið sjóða niður í fimmtán til tuttugu mín. Látið fiskinn í og látið sjóða í tíu til fimmtán mín. til viðbótar. Látið steinseljuna yfir og berið fram með góðu brauði. Hægt er að elda grunninn í súpuna snemma dags og bæta svo fiskinum út í og sjóða í tíu til fimmtán mín. rétt áður en hún er borin fram, það sparar bæði tíma og fyrirhöfn en þannig er súpan líka oft betri. Ef ég á hvítvínsdreitil þá skvetti ég smávegis í súpunaþað gerir hana enn betri. Í raun má setja hvaða fisk sem er í súpuna en ég mæli samt með að hana a.m.k. eina tegund af feitum fiski.