Létt og ljúffent humarsalat Eva Laufey

Innihald

600 g humarhalar, skelflettir

1-2 hvítlauksgeirar, pressaðir

1 msk. steinselja, smátt söxuð

1/2 chili, fræhreinsað og skorið smátt

klípa af smjöri

1 poki af blandað salat

1 meðalstór rauðlaukur

1 mangó, smátt skorið

1/2 agúra, smátt skorin

1 gul paprika, smátt skorin 

8-10 jarðaber, skornar í þunnar sneiðar, magn eftir smekk

Mangódressing

100 g mangó

safi af 1 límónu

1 msk. ljós ólífuolía

1 tsk. agavesíróp

salt og nýmalaður pipar

Aðferð

Hitið hvítlaukinn í smjórinu á pönnu, bætið steinselju, chili og humarinum út í, steikið í fáeinar mín. Takið humarinn af hitanum og kryddið með salti og pipar. Skerið rauðlauk, mangó, hreðkur, agúrku, papriku og jarðaber í bita og blandið vel saman við salatblöðin. Dreifið salatblöndunni á fallegt fat, setjið humarinn ofan á salatið.

 

Mangódressing

Setjið allt hráefnið í matvinnsluvél og maukið vel.

Dreypið ríkulega af mangódressingunni yfir allt salatið rétt áður en það er borið fram.

Athugasemdir

Fyrir 3-4

Flokkar
Kvöldmatur Sjávarréttur
Skoðanir