Innihald
300 g lax, flakaður
½ tsk turmeric-krydd
salt og nýmalaður pipar eftir smekk
2 ½ msk kókosmjöl
handfylli kóríander
7-8 greinar mintulauf
3 hvítlauksrif, oressuð
1 tsk rifið engifer
1 grænt chili-aldin
Bananalauf
Aðferð
Skerið laxinn í 4 hluta, stráið turmeric yfir og kryddið með salti og pipar.
Þurrristið kókosmjölið á pönnu og setjið í matvinnsluvél ásamt afgangnum af hráefninu og blandið vel saman. Hellið blöndunni yfir laxinn og marínerið í a.m.k 30 mínútur.
Ristið bananalaufin á þurri pönnu í 1-2 mínútur á hvorri hlið og skerið þau út í 4 ferninga. Leggið laxabita inn í hvert lauf og pakkið inn. Laxinn má einnig pakka inn í álpappír eða smjörpappír. Steikið á pönnu í 3-4 mínútur á hvorri hlið.
Flokkar
Skoðanir