1 kg risarækja
450 g hrísgrjón, elduð skv. pakkningu
50 g mintulauf
3 msk olía
Masalasósa:
Handfylli fersk kóríanderlauf
4 hvítlauksrif, pressuð
1 ½ tsk cumin fræ
1 tsk kóríanderfræ
2 þurrkuð chili-aldin, má líka nota 1 ½ tsk chili-aldin fræ eða eftir smekk
1 dós kókosmjólk
2 msk tómatþykkni (tómatpaste)
salt og nýmalaður pipar eftir smekk
safi af 1 sítrónu
Setjið kóríanderlauf, hvítlauk, cumin- og kóríanderfræ og chili í matvinnsluvél og blandið vel saman. Hér má bæta við smá vatni til að þynna sósuna örlítið. Kryddið með salti og pipar.
Hitið olíuna á pönnu á meðalhita og hellið masalasósunni út í og eldið í 3-4 mínútur, hrærið stanslaust á meðan. Bætið tómatþykkninu saman við og eldið áfram í mínútu. Hellið þá kókosmjólkinni saman við og látið malla í 15-20 mínútur. Það má bæta við meiri kókosmjólk ef sósan er of sterk eða of þykk.
Hitið ofninn í 180°C. Hálfsteikið rækjurnar á meðalheitri pönnu og bætið þeim saman við sósuna.
Hellið smá sósu í botninn á eldföstu móti og leggið þunnt lag af hrísgrjónum yfir. Hellið sósu og nokkrum rækjum yfir og leggið mintu- og kóríanderlauf á stilkunum yfir. Leggið þá aftur hrísgrjón yfir og svo sósu þar til allt hráefni er uppurið. Leggið álpappír yfir mótið og bakið í 20-25 mínútur. Fjarlægið matjurtastilkana þegar rétturinn er snæddur.
.