Innihald
300 g nautahakk
2 laukar
3 msk. smjör
1 dl tómatsósa
1 súputeningur
1/2 tsk. salt
pipar
hvítlauksduft
1 tsk. basilíkum
1 1/2 msk smjör
3 msk. hveiti
4 dl mjólk
salt
pipar
2 dl rifinn ostur 26%
200 g makkarónur
Aðferð
Sjóðið makkarónurnar eftir leiðbeningum á pakka. Saxið laukinn og brúnið hann ásamt hakki í smjöri á pönnu. Blandið tómatsósu út í, kryddið. Látið krauma í 10-15 mín. Bræðið smjörið, hrærið hveitið saman við, þynnið með mjólkinni. Sjóðið í 5 mín. og kryddið. Blandið helminginn af makkarónunum í smurt eldfast fat, síðan hakk og þá sósu, aftur makkarónur, hakk og sósu. Stráið því sem eftir er af oft yfir.
Bakið við 225-250°C í 15 mín.
Berið tómatsalat með
Athugasemdir
-
Flokkar
Skoðanir