Indverskar pönnukökur með tómat-chutney Gestgjafinn

Innihald

Pönnukökudeig f. 4-5 pönnukökur

150g kjúklingabaunamjöl (gram flour)

1 tsk. kóríanderduft

2 tsk. kumminduft

1/2 tsk. túrmerikduft

1 tsk. salt

2 tsk. olía

250 volgt vatn

3-4 stilkar vorlaukur, saxaðir

 

Tómatmauk

2 tsk. ólífuolía

1 tsk. sinnepfræ

1 tsk. kumminfræ

1/2 tsk. chili-flögur

4 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir

4 stórir tómatar vel rauðir, í grófum bitum

2 tsk. hunang

1 1/2 tsk. sjávarsalt

pipar eftir smekk

hnefafylli kóríander

100 g parmesanostur, rifinn

Aðferð

Pönnukökur

Setjið mjöl, kóríander, kummin, túrmerik og salt í skál, bætið svo olíu og vatni saman við og hrærið í deig. Bætið söxuðum vorlauk síðast út í, deigið á að vera frekar þykkt eða eins og vöffludeig. Bakið þykkar pönnuköku úr deginu.

 

Tómatmauk

Hitið olíu á pönnu á meðalhita, setjið sinnepfræin út á pönnuna og steikið þar til þau byrja að poppast, bætið kumminfræjum og chili-flögum á pönnuna. Steikið í 30 sek. Bætið hvítlauknum saman við og látið hann krauma aðeins og bætið svo tómötunum saman við, eldið við vægan hita í 10 mín. og hrærið reglulega í tómatblöndunni. Dreifið jafnt yfir pönnukökurnar og stráið ferskum kóríander og parmesanosti yfir.

Athugasemdir

x3 f. 6 að lámarki

Flokkar
Grænmetisréttur Kvöldmatur
Skoðanir