Deig
130g hveiti
1/2 tsk. salt
240 ml. mjólk
1 msk. smjör, bráðið
2 tsk. harissa-mauk
2 egg
olía til að smyrja pönnuna með
Sveppafylling dugar f. 4-5 pönnukökur
2-3 msk. ólífuolía
2 skalotlaukar, saxaðir
2 hvítlauksgeirar, skornir fínt
1 tsk. sjávarsalt
nýmalaður pipar eftir smekk
1 tsk. chili-flögur
300 g blandaðir sveppir, skornir grjóft
4 msk. sýrður rjómi, 18%
50 g rifinn ostur
hnefafylli steinselja
Deig
Blandið hveitii og salti saman og bætið svo mjólk, smjöri, harissa-mauki og eggjum saman við og hrærið vel saman í mjúka soppu. Deigið á að vera vel þunnt. Látið deigið standa í 1/2 tíma. Bætið smávegis vatni saman við áður en byrjað er að steika ef deigið hefur þykknað við að standa. Setjið smávegis olíu á venjulega kökupönnu eða Crepes-pönnu og steikið þunnar pönnukökur. Það er óþarfi að setja olíu eftir hverja köku.
Fylling
Hitið olíu á pönnu og steikið laukinn þar hann verður glær, bætið hvitlauknum saman við og bragðbætið með salti, pipar og chili-flögum. Bætið sveppunum saman við og steikið áfram. Bætið olíu á pönnuna ef þarf. Steikið sveppina þar til þeir taka á sig lit eða í um 5 mín. takið af hitanum og hrærið sýrðan rjóma og steinselju saman við. Setjið hluta af fyllingu á hverja pönnuköku og stráið rifinn osti yfir og brjótið pönnukökurnar saman við.