Grænmetis lasagne – fyrir 4-6.

Innihald

6 lasagnablöð (spínatlasagna)

1 dós tómatar með hvítlauk

2 gulrætur

1 rauðlaukur

½ kúrbítur og ½ eggaldin

Spergilkál, nokkrar greinar

Blómkál, nokkrar greinar

nokkrir sveppir

1 paprika

2 - 3 bitar frosið spínat

2-3 sneiðar sólþurrkaðir tómatar

2 msk ólífuolía

1 msk. balsamedik

2/3 úr stórri dós kotasæla

50 g rifinn ostur

 

Aðferð

Skerið grænmetið í frekar stóra bita og marínerið í 1 msk af ólífuolíu og balsamediki. Setjið grænmetið ásamt maríneringu og spínati í ofnskúffu og bakið í ofni við 200 gráður í um 15. mín. (Mjög gott er að grilla grænmetið, en aðeins meira vesen.) 

Hellið tómötunum á pönnu og látið malla um stund þar til vökvinn fer að sjóða niður. Kryddið sósuna eftir smekk. Takið grænmetið úr ofninum og blandið saman við sósuna, setjið niðurskorna sólþurrkaða tómata 

Blandið saman kotasælu og rifnum osti í annarri skál. 

Raðið lasagna í eldfast mót. Tæplega helmingur grænmetisblöndunnar fer neðst, svo kemur helmingur af kotasælublöndunni, þá lasagnablöð (þarf ekki að sjóða) og síðan er röðin endurtekin. Endið á þunnu lagi af grænmetisblöndu og rífið svo ost yfir. Bakið í 170 gráðu heitum ofni í 20 - 30 mín. Látið standa í um 10 mínútur áður en rétturinn er borinn fram.

 

Athugasemdir

(ATh má nota öðru vísi samsetningu á grænmeti í réttinn, tilvalið til að nota afganga)

Flokkar
Grænmetisréttur Kvöldmatur
Skoðanir