2-3 msk. ólífuolía
2 stk. laukar
2 stk. hvítlauksrif
1 msk fersk engiferrót eða 1 tsk. engiferduft
1 stk. lítið chilialdin
1 tsk. kóríanderduft
1/2 tsk. kardimommuduft
1 tsk. karrí
1 tsk. cuminduft
1/2 tsk túmerik
3 stk. negulnaglar
1/2 tsk kanill
1 dl kókosflögur
1 msk. tamarí sósa
1 dós kókosmjólk
1 stk. eggaldin
1 stk. steinseljurót
2 stk. gulrætur
3 stk. kartöflur
1 stk. græn papríka
1 stk. rauð papríka
250 g sykurbaunir
smá sjávarsalt
1/2 búnt ferskt kóríander
1/2 - 1 dl kókosflögur
Missið ekki kjarkinn þótt innihaldslistinn í þessari uppskrif sé langur. Lesið uppskriftina aftur yfir og dragðu djúpt andann, þá uppgötvið þið að þetta er einföld handavinna en ekkert stórkostlega flókið og rétturinn er vel þess virði að prófa hann. Afhýðið laukana, skerið í sneiðar og pressið hvítlaukinn. Saxið engiferrótina smátt og skerið chili í tvennt, fræhreinsið og skerið í litla bita. Skerið eggaldinn í hæfilega stóra bita. Afhýðið steinseljurót og skerið í smart munnbita. Skerið gulræturnar í flotta munnbita, karftöflurnar í flotta teninga og paprikunar 2 x 2 cm bita. Saxið kóríander smátt og þurrristið kókosflögurnar. Hitið olíuna í potti og mýkið lauk, hvítlauk, engiferrót og chilialdin í um 5-7 mín. Kryddið og setjið kókosflögurnar útá og steikið í nokkrar mín. Setjið tamarisósuna, kókosmjólkina og allt grænmetið saman við og látið malla undir loki í um 45 mín. Bragðið til með smá sjávarsalti og stráið fersku kóríander og þurristuðum kókosflögum yfir.
.