Desert - Súkkulaði- og temús Uppskriftir mömmu

Innihald

50 ml mjólk
250 ml rjómi
50 g smjör
550 g hvítt súkkulaði
4 eggjarauður
20 g sykur
4 eggjahvítur

Aðferð

Hitið mjólk og rjóma að suðu með 2 tepokum úti í. Hellið vökvanum yfir saxað súkkulaðið og hrærið vel saman. Blandið svo mjúku smjörinu saman við ásamt eggjarauðunum, einni í einu. Stífþeytið að síðustu hvíturnar og sykurinn og blandið saman við súkkulaðiblönduna. Setjið þetta strax í form og látið standa í kæli minnst þrjá tíma.

Athugasemdir

Vín með desert Hvít súkkulaði- og temús Vín: Asti Riccadonna. Dæmigert Asti Spumante, frá Norður-Ítalíu. Í Asti er mikið um eftirréttavín, allir þekkja Asti-vínin. Gott fyrir og eftir máltíð. Hörgult með fínlegri kolsýru. Ilmur af múskati og ávöxtum. Létt, ávaxtaríkt, freyðir vel, örlítið kryddað en í góðu jafnvægi. Nokkuð sætt. Riccadonna er frábært vín sem hentar við öll tækifæri. Nýtur sín best kælt, 6-8°C, og er gott sem fordrykkur en einnig sem eftirréttavín. Glös: Freyðivínsskál eða kampavínsglös

Flokkar
Eftirréttur
Skoðanir