Créme brúlée Eva Laufey

Innihald

500 ml rjómi

1 vanillustöng

1 tsk. vannillusykur

6 eggjarauður

100 g sykur + meiri sykur í lokin

um 1 tsk. ofan á hvert form

Aðferð
  1. Hitið ofninn í 150°C (blástur).
  2. Skerið vanillustöng í tvennt eftir endilöngu og skafið fræin innan úr henni.
  3. Hellið rjóma í pott, bætið vanillufræjum og stöng í pottinn og hitið að suðu. Lækkið hitann og leyfið rjómanum að malla í fimm mín.
  4. Þeytið eggjarauður og sykur þar til blandan verður létt og ljós.
  5. Hækkið aftur hitann þegar rjóminn er búinn að malla í fimm mín. og náið upp suðu, sigtið rjómablönduna og hellið henni saman við eggjablönduna. Hrærið vel í og skiptið niður í lítill form, þessi uppskrift dugir í sex til átta form eða eitt stórt form. 
  6. Setjið forminn í eldfast mót og hálffyllið formið með heiti vatni. Vatnið á að ná upp að miðju litlu Créme Brulée formanna, með því að fylla eldfasra móti með heitu vatni tryggir það jafnari bakstur á eftirréttinum.
  7. Bakið við 150°C í 50-55 mín.
  8. Kælið eftirréttinn MJÖG vel áður en þið ætlið að bera hann fram, best er að gera hann deginum áður og kæla hann í ísskáp á meðan.
  9. Stráið smávegis af sykri yfir hvert mót og bræðið, þið getið notað sérstakt eldúslogsuðutækið eða einfandlega sett undir grillið í ofninum (fylgist mjög vel með, það tekur nefnilega enga stund fyrir sykurinn að bráðna).
Flokkar
Eftirréttur
Skoðanir