Chili sin carne Grænkostur (Solla)

Innihald

2 dl nýrnabaunir

1 stk. stórþarastrimill

2-3 msk. olía

2-3 stk. laukur

3-4 stk. hvítlaukur

1 stk. ferskt chilialdin

1 1/2 tsk. cuminduft

1/4 tsk. kanill

1/2 búnt fersk basilíka

3-4 stk. gulrætur

2 stk. sellerístilkar

1 stk. rauð papríka

1 stk. sæt kartafla

1 msk. ferskur sítrónusafi

1 dós kókosmjól

6-8 msk. tómatmauk

1 tsk. sjávarsalt og smá nýmalaður pipar

Aðferð

Chili sin carne þýðir kjötlaust chili. Þetta er mín útgáfa af þessum vinsæla suður-ameríska rétti. Til tilbreytingar er hægt að bera hann framð í maísskeljum sem fást í Hagkaupum. Það er avókadósalsa og þykka ab-mjólk fram með réttinum. Þykka ab-mjólk útbúið þið með því að hella ab-mjólk í kaffifilter og sía í 1-2 klst.

Leggið nýrnabaunirnar í bleyti yfir nótt olg notið 1 dós af niðursoðnum baunum. Skiptið um vatn á baununum og setjið baunir og tvöfalt magn þeirra af vatni, ásamt smá bita af stórþara, í pott og sjóðið í um 1 kslt. eða þar til baunirnar eru tilbúnar. Afhýðið laukana og skerið í þunnar sneiðar. Skerið chili í tvennt, fræhreinsið og skerið í litla bita. Skerið gulrætur á ská, í strimla. Skerið sellerí í 1/2 cm þykkar sneiðar og papríku í 2x2 cm bita. Afhýðið sætu kartöfluna, skerið í tvennt og síðan í 1/2 cm þunna bita. Hitið olíuna í potti og mýkið lauk, hvítlauk og chilialdin í um 10 mín. eða þar til laukurinn byrjar að gyllast. Bætið nú kryddi útí og hrærið vel saman. Setjið grænmetið útí og hrærið öllu vel saman. Að lokum setjið þið sítrónusafa, kókosmjólk og tómatmauk útí og látið réttinn malla í um 15 mín. Bragðið til með smá sjávarsalti og nýmöluðum svörtum pipar.

Athugasemdir

-

Flokkar
Grænmetisréttur Kvöldmatur
Skoðanir