Afrískur pottréttur Grænkostur (Solla)

Innihald

2-3 msk. ólíluolía

1 stk. laukur

1 stk. ferkur chilialdin 

1 msk. milt karrímauk frá Pataks

2-3 msk. tómatmauk

3 stk. gulrætur

2 stk. sellerístiklar

1 stk. blómkálshöfuð

1 stk. græn paprika

1 dós kókosmjólk

1 dós niðursoðnir tómatar

2 stk. gerlausir grænmetisteningar frá Rapuntzel

1 dós nýrnabaunir, um 400 g soðnar

smá sjávarsalt

Aðferð

Því lengur sem þessi afríski pottréttur fær að sjóða þeim mun betri verður hann. Annars er hann einn af þessum órúlega einföldu og bragðgóðu pottréttum þar sem engu er líkara en að einhverjir töfrar hafi átt sér stað í pottinum. Ég nota hér nýrnabaunir en þið getið notað hvaða baunir sem er. Það er tilvalið að tvöfalda uppskriftina og frysta afganginn. 

Afhýðið laukinn og skerið í þunnar sneiðar. Skerið chili í tvennt, fræhreinsið og skerið í litla bita. Skerið gulræturnar á ská, í strimla, og sellerí og blómkál í bita. Skerið paprikuna í tvennt, fræhreinsið og skerið í 1 x 1 cm bita. Hitið olíu í potti og steikið laukinn þar í um 5-7 mín. Bætið síðan kókosmjólk og niðursoðnum tómötum útí ásamt grænmetisteningum og nýrnabaunum. Sjóðið í 20-30 mín og bragðið síðan til með sjávarsalti. Munið að því lengur sem rétturinn fær að sjóða því magnaðri verður hann.

Athugasemdir

17/1 2010 Góður

Flokkar
Grænmetisréttur Kvöldmatur Pottréttur
Skoðanir